Færsluflokkur: Bloggar

Hver er í Noregi

Jæja það skyldi þó aldrei vera svo að fyrrum bankastjóri Glitnis standi eitthvað á bakvið kaupinn á Glitni í Noregi,er ekki Bjarni Ármannsson búsettur í Noregi??????Maður spyr sig,,,,,,
mbl.is Starfsmenn keyptu Glitni í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lok lok og læs

Í guðana bænum farið að loka Kauphöllinni,gengið fellur ekki á meðan hún er lokuð.


mbl.is Gengisvísitalan yfir 200 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svartur September

Á morgun er 1 október,krónan er búin að vera í frjálsu falli allan september,ef svona heldur áfram þá verða gjaldþrot og nauðungarsölur starfvettfangur  fyrrverandi bankastarfsmanna og fasteignasala.


mbl.is Krónan veiktist um 5,3%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiningadeildir

Því líkir snillingar sem eru þar á ferð,senda frá sér spá ofan á spá og hvað gerist allt fer til fjandans og bankarnir hagnast sem aldrei fyrr,svo segja þeir líka að það verði að taka upp evru annars fara bankarnir úr landi ég segi bara,,,,,,,,,, BLESS BLESS.....farið hefur fé betra....

 


mbl.is Spá lítilli breytingu á gengi krónunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÍbb

Bíbb er það sem við eigum að segja til að komast yfir verðbólguskotið sem nú dynur á okkur,semsagt vera jákvæð og ekki horfa á hvað skuldir hækka og kaupmáttur minnkar.

Ef fólk er fífl hvað eru þá ráðamenn þjóðarinnar,það er auðvitað hægt að gleyma þeim þrengingum sem við erum að ganga í gegnum núna og samfagna komu silfurverðlaunahafana frá Ólympiuleikunum og segja bíb í einn dag en svo kemur kaldur veruleikinn og verðtryggð lán hækka um mánaðamótin og hver þarf að borga það,jú þeir sem hafa tekið lánin og ekki skuldar ríkissjóður neitt samkvæmt því sem ráðamenn segja,er ríkissjóður þá ekki með gott lánstraust og getur tekið lán til að slá á efnhagsþrengingar flestra landsmanna og fyrirtæka landsins.Nei þeir sitja þunnu hljóði og láta ekki sjá sig opinberlega nema Þ.G.K og þá í Kína á kostnað skattborgara.það er búið að ráða sérstakan ráðgjafa forsætisráðherra í efnahagsmálum og getur verið að hans fyrsta ráð til hans hafi verið GET THE FUCK OUT OF HERE og hann tekið þeirri ráðgjöf og ekkert til hans spurst síðan.

Þjóðin sýnir samstöðu með silfurhöfunum að sjálfsögðu,þá hljótum við að geta sýnt þá  samstöðu gegn ríkisstjórninni til að fá þá til að hætta aðgerðarleysi og far að gera það sem þeim ber fyrir fólkið í landinu.             ARRRG


mbl.is ASÍ lýsir yfir áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryggi

Ég stend við það sem ég sagði í Janúar ÞAÐ ER GOTT AÐ BÚA Í KÓPAVOGI allavega er pólítískt öryggi þar,,,,,,hahahahahahahaGasp


mbl.is Nýr meirihluti að fæðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvottur

Gæti verið að þetta sé ekki þjófur,þetta gæti verið Þvottabjörn,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,bjarndýrafárið mikla.
mbl.is Þjófur leikur lausum hala á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægi stjórnvalda

Hvar eru stjórnvöld og hvað eru þau að gera núna,ég veit að Umhverfismálaráðherra er að skipa starfshóp um björgun Ísbjarna,mjög mikilvægt málefni eða hvað,,,,,,,,,,,,,,,,en er almenningur í þessu landi ekki friðaður fyrir spákaupmennsku og sukki á fjármálamörkuðum,,,,,,,,,,,,nei greinilega ekki.krónan fellur og hagur heimila fellur um leið,,,,,,,,,það er verið að taka hinn almenna borgara þessa lands af lífi án þess að hleypa af skoti,,,,,,,,,,,,,,,,bara að svæfa hagkerfið og fólkið með svefninum langa.

 


mbl.is Gengi krónunnar lækkar um 1,98%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálp!!! Björgum bönkunum!!!

Það er búið að glymja í eyrum smáborgaranna að það þurfi að bjarga bönkunum. ÁTJÁNKOMMASJÖMILLJARÐARA hagnaður hjá Glaumþingi sem hefur örugglega myndast í erlendum viðskiptum ... kannske smá hagnaður af þjónustugjöldumShocking. Þeir eru líka búnir að hagræða hrikalega síðan á áramótum, segja upp svona 29 starfsmönnum á mánuði, það telst jú ekki hópuppsögn hjá svona stóru fyrirtæki nema sagt sé upp 30 eða fleiri í einu...FootinMouth. Ó þetta er líklega tóm öfund hjá mér, hagnaðurinn er víst minni en á sama tíma í fyrra, en buddan mín er í uppnámi vegna Bólgumóra... verð ég að segja upp Mogganum og hætta að lesa minningagreinar eða hætta alveg að kaupa bensín á bílinn en birgja mig í staðinn upp af bóni á tilboði hjá N1,,,,, tveir fyrir einn af útrunnu bóni og standa úti á hlaði í sumar og bóna (já takið af ykkur skóna,,,, hvað ertu' að bóna....GAS GAS).

Ég neita að taka þátt í að bjarga bönkunum, þeir geta haldið áfram að hagræða með uppsögnum á forstjórum..... Hreiðar komdu að bóna!!


mbl.is Hagnaður Kaupþings 18,7 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningastefnan

Mín peningastefna er mjög einföld í sniðum,ég er í vinnu frá 08:00 til 18:00 4 daga vikunnar og 08:00 til 16:00 á föstudögum,fyrir það fæ ég laun.Þannig afla ég peninga.WinkMeð þessum peningum sem ég vinn fyrir borga ég skuldir og hef í mig og á,ég bý einn og dagleg neysla mín er ekki mikil og áhugamál mín taka ekki mikið af peningum frá mér það er helst ef ég kaupi bensín til að fóðra þá 300 hesta sem ég geymi í húddinu á leiktækinu mínu.Annars hef ég þá reglu að borga mínar skuldir og vera ekki í neinum vanskilumHaloenn nú er illt í efni allt er á leið til hins verra,Devil mínar ráðstöfunartekjur hafa minnkað um c.a.25.000 þús frá áramótum þökk sé verðbólgu og gengisfalli,það er búið að semja um laun á almennum markaði,þannig að staðan er sú að til að fá meiri út úr peningastefnunni minni verð ég að draga úr kostnaði,hætta að kaupa Morgunblaðið,segja upp internetáskrift,hætta að fóðra hestana 300 í leiktækinu,drekka vatn,þvo mér sjaldnar,skipta sjaldnar um nærbuxur(spara þvottaefni)borða minna,CryingToungeGrin týna flöskur og reyna að spara eins og ég mögulega get.

Ég gæti hugsanlega farið að vinna aukavinnu á kvöldin og um helgar og þá reyna að fá vinnu þar sem laun eru ekki gefin upp til skatts.

Kannski eru betri tímar framundan ef að ráðherrar ríkisstjórnarinnar ná að halda fund um málið og kaupa gjaldeyri fyrir bankana svo þeir rói ekki lífróður,jú þeir eru búnir að græða síðustu misseri en bara ekki í réttum gjaldmiðli,eða hvað eru þeir búnir að eyða hagnaðinum í flottræfilshátt og kaupréttarsamninga.

En þetta er bara snertilending,í næstu lendingartilraun gerist hvað???????????

LOST kannski þetta er jú eyja sem við búum á,við og hinir(við sem borgum og hinir sem ráða) Bandit

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

JRJ

Höfundur

JRJ
JRJ

Venjulegur gaur með sjálfstæðar skoðanir á ýmsum málum.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P6210003

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband